Ljótufataball
VARIST EFTIRLÍKINGAR!
Vegna ruglings á Dillon Sportbar var tvíbókað og MONO ballið færist yfir á AROMA
LAUGARDAGINN 17.JANÚAR
00:00 - 03:00
FRÍTT INN!
Takið eftir gott fólk.
Þetta er Ljótufataball!
Verðlaunin fyrir ljótustu fötin eru rosaleg!
Það er ekki skylda að koma í ljótum fötum en það ER ÆSKILEGT!
Matthíasdóttir er mćtt!!
Langt síðan maður hefur sest niður og bloggað aðeins um lífið og tilveruna. Svo sem búið að vera nóg að gera að undirbúa jólin sem við ætlum að halda á Raufarhöfn þetta árið, förum norður næstkomandi laugardag í samfloti við Halldóru og Svavar Mána, Stebba og Lilju og svo koma Sif og Siggi og prinsessurnar þeirra aðeins seinna. Stebbi fer reyndar bara inn á Akureyri enda nenni ég ekkert að hafa hann hangandi yfir mér yfir jólin... hehe djók þú ert fínn Stebbi minn. Ég hlakka rosalega til að komast í sveitina og chilla og skemmta mér þar, alltaf dásamlegt að koma þarna og frábærar móttökur. Við verðum hjá Svövu og Júlla vegna þess að vogsholtið er fullt af fólki „heimili mömmu og pabba Ölmu". En það verður bara frábært að vera hjá þeirri fjölskyldu. Ætlum að leggja af stað kl 08:00 svo við komumst tímanlega til Sigurðarstaða sem er bóndabærinn sem systir Ölmu hún Þóra býr ásamt manni sínum og sonum.. jú og voff voff sem er besti vinur Ölmu.
Ég er að vinna til 20 öll kvöld í þessari viku þar sem verslunin er opin og er ég einn á vaktinni á lagernum, alveg gríðarlega stemmning og er einn kúnni búinn að koma þessa tvo daga sem liðnir eru af þessari viku. Maður er jú ennþá með vinnu sem er meira en margir hverjir íslendingar en ég ætla nú ekki að fara að tala um þessa bévétans kreppu hér og ætla að einbeita mér frekar að einhverju öðru. Vinnan gengur bara og er maður farinn að þora aðeins að rífa kjaft og hafa skoðanir.. hehe
Matti og Guðrún eru búin að eignast prinsessu sem heitir.. nei grín og kom hún í heiminn 9 desember og var ég óþolandi bróðirinn þegar ég vissi að allt var komið af stað. Sendandi sms „er eitthvað að gerast?" „ ekkert að frétta?" og svo hringdi ég nokkrum sinnum en fékk bara talhólf .. hehe sorrý var bara svo spenntur. Og er enn og koma þau til Íslands um miðjan janúar liklega að skíra litlu og verð ég ekkert minna spenntari þá í að sjá þessa dúllu sem maður er bara búinn að sjá á mynd. En og aftur til hamingju Matti , Guðrún og Daníel Finns.
Já svo verð ég að hrósa minni konu sem er frábær kokkur alltaf þegar ég kem heim úr vinnunni þá finn ég yndislega matarlykt þegar ég labba upp stigann og það klikkar ekki að matarlyktin er frá hurðinni sem ég opna... hehe svo sannaði hún svo um munar um daginn þegar hún ákvað upp á sitt einsdæmi að halda kökuboð fyrir fjölskyldur okkar að hún kann svo sannarlega að baka líka. Þvílíkar kræsingar hafa ekki sést hérna megin við suðurbraut í langan tíma. En það var alveg frábært að fá alla hérna og var þetta vel heppnað. Svo héldum við partý um daginn fyrir vini okkar sem var einnig gríðarlega gaman og mættu vel flestir. Það var dansað upp í sófa og jólatónlistinn fékk að hljóma vel.
Ætla svo aðeins að snúa mér íþróttum núna. Man Utd hefur byrjað tímabilið þokkalega bara en ekkert frábærlega samt. En Liverpool situr á toppi deildarinnar núna en því miður fyrir þá er enginn bikar fyrir að vera efstir í desember, það eru 38 leikir í þessari blessuðu deild. Evra kallinn fékk 4 leikja bann sem ég skil bara engan veginn. Menn eins og Drogba kasta hlut í áhorfendur og fá minna bann. Svo ég tali nú ekki menn sem tækla hrottalega eyðileggja nánast ferilmanna og fá 2 til 3 leiki. Svo lendir Evra í smá átökum við einhvern Chelsea gaur sem slær grasið á vellinum og fær 4 leiki. Alveg asnalegast er samt ánægður með mína menn í United að áfrýja þessu ekkert heldur bara segja fuckit við nennum ekkert að eiga við FA sem er jafn spillt stofnun og Ríkistjórn Íslands.
FH vs Haukar var um daginn og fór ég of course á völlin ásamt Árna frænda og fleiri góðum köppum. Allir vita svo sem hvernig leikurinn fór og voru slagsmál eftir leik. Ég er sammála að FH átti að vera með betri gælu og FH bætir úr því. En að dæma manninn í 2 leikja bann fyrir þetta brot?? Þetta er max 2 mínútna brottvísun það voru hinsvegar hin ofsafengu viðbrögð Haukamannsins sem skópu allt þetta rugl. Átti maðurinn virkilega von á því að fá skjóta bara?? Haha.. maður sá þetta gerast langar leiðir. Þetta er alþekkt í handbolta að menn ganga í skrokk á mönnum á þessum augnablikum. En mér fannst Fhingurinn brjóta frekar „vel" á Haukamanninum. Dró hann bara niður og hefðu Haukar gert nákvæmlega það sama í þessari stöðu. En FH orðnir stóri bróðir aftur eða aftur?? FH er bara stóri bróðir. Ég verð ekkert stóri bróðir þótt ég vinni Matta í körfu einusinni. Það gerist reyndar sjaldan enda Matti mun sneggri og jú hittnari hehe Love u Brother
Er þetta ekki komið gott bara??
Jú held það að lokum vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Farið vel með ykkur og ekki tala um kreppuna um jólin, það er bannað.
Knús á alla bara.
Árni Rúnar jr
Ţađ ţarf fagmenn til ţess ađ rćna RÍKIĐ.. ekkert easy job....
Upp komst um vel skipulagðan þjófnað úr vínbúðinni Heiðrúnu þegar uppgötvaðist að síðustu flösku sinnar tegundar sem átti að vera til í búðinni var hvergi að finna. Ung kona sem þar starfaði og félagi hennar höfðu stundað það að hann keypti áfengisflöskur og fékk þær síðan endurgreiddar án þess að skila þeim. Starfskonan var rekin en engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort hún verði kærð til lögreglu eða ekki.
Konan hafði unnið í Vínbúðinni um nokkurn tíma og hafði komið sér upp svindlkerfi ásamt vini sínum, sem tók þátt í svikamyllunni með henn, samkvæmt heimildum DV. Hún vann á kassa og afgreiddi vin sinn sem kom oft og keypti vínflöskur í búðinni. Nokkrum dögum síðar kom hann og nýtti sér þann möguleika í viðskiptum við ÁTVR að hægt er að skila áfengi og fá það endurgreitt.
Maðkurinn í mysunni var sá að flaskan kom aldrei aftur inn í búðina. Parið fékk flöskurnar ókeypis þar sem peningurinn var ætíð endurgreiddur þótt áfengið skilaði sér ekki aftur í hillur verslunarinnar. Fólkið stundaði þetta í marga mánuði og náði að svíkja alla vega tugi þúsunda króna út úr versluninni, án þess að nokkra grunaði nokkuð.
Ég og Alma erum búin ađ vera saman í ár..... :)
Búin að gera ótrúlega mikið á einu ári, hérna er smá myndband af þessu góða ári.
http://www.youtube.com/watch?v=0i9c0afp2kY
New look soon..
Jæja góðir hálsar,
Vorum í Eyjum um helgina að heimsækja mömmu og manninn hennar Jóa, þau voru svo elskuleg að bjóða okkur svo maður geæti hitt mömmu sína fyrir jólin og þökkum við kærlega fyrir það. Föstudagskvöldið fór bara í að úða í sig nammi, brauðtertum og fleira ógeði... maður hefur það svo gott í kreppunni sjáiði til J Laugardagurinn var frekar rólegur hjá okkur líka svo sem ég lá yfir boltanum bara með Jóa sofandi við hliðina á mér á meðan Alma, Alda og Mamma fóru á einhvern blabla markað.
Svo kíktum við í partý með Öldu og Adda en vorum komin heim snemma, nenntum bara ekki að djamma meira. Kominn tími á að róa sig aðeins og spara , spara vegna þess meðal annars að ég er að fá gleraugu góðir hálsar. Ákvað fyrir rest þar sem ég er alltaf með hausverk og þarf alltaf að pýra augun þegar ég horfi á tv að skella mér til augnlæknis og ég var skoðaður bak og fyrir. Svo að lokum skellti hún dropum í augun á mér þannig að ég er búinn að vera með lélega sjón í allan dag.. sá smá fram fyrir mig í allan dag en núna er þetta allt að koma. Ég mældist með -0,5 og -0,75 sem er ekki mikið en augun mín vinna ekki saman og nota ég eiginlega bara annað augað. Þannig að á eftir erum ég og Alma að fara að finna gleraugu á mig... frábært.
Engar stórar fréttir í bili svo sem, þakka bara öllum þeim sem sendu hamingjuóskir á okkur Ölmu J Alltaf gaman að fá solleis. Sérstaklega frá vinum sínum.
What are friends for??
En ekkert meira að frétta í bili.
Kv
Árni Rúnar
Árni Rúnar is engaged..
Já þessi helgi og síðasta vika var gríðlarlegt stress og spenningur. Ég og Alma vorum búin að ræða trúlofun enda mjög staðráðin í að vera saman 4ever.. og vildum staðfesta það á þennan hátt. Við vorum búin að ákveða að fara á laugardaginn saman að skoða hringa og vorum við mikið búin að ræða hvernig hringa við vildum og búin að skoða á netinu og þar fram eftir götunum. Ég ákvað hinsvegar að láta drauma sveitastúlkunnar að norðan rætast.. hehe. Ég fékk til liðs við mig úrvalslið kvenna Sif og Svövu systur hennar. Svo fór ég á fimmtudag að skoða hringa í skjóli vinnu og fann hringa og ákvað að hugsa það aðeins og keyrði tvo hringi á strandgötunni og talaði við Sif í símann, þangað til ég sagði OK ég tek þessa hringa hjá Nonna gull. Þetta var samt meira plott en það samt.... sparireikningurinn okkar er á Ölmu nafni og þurfti ég þar af leiðandi að láta auðkennislykilinn hennar hverfa.. hehe og það tókst fyrir rest svo bað ég Sif að tala við Svövu sem er bankafulltrúi Ölmu og systir hennar og biðja hana að segja Ölmu ALLS ekki stöðuna ef Alma myndi hringja eða bara hreinlega skrökva að henni.. en það kom nú aldrei til þess enda fattaði Alma ekki fyrr en seint á föstudeginum að auðkennið væri horfið og að sjálfssögðu bar ég af mér allar sakir um að ég væri með hann. Af hverjiu ætti ég að vera með hann ástin mín??.... hehe
En aftur að hringunum Alma er með óvenju litla og sæta putta og gat Nonnigull ekki sett demant í hringinn nema vera með hennar stærð á hreinu svo ég ákvað að fara á skeljarnar með plain hring og fara svo á mánudaginn og ganga frá restinni... en.. svo vorum við Alma að ræða þessi hringamál eitthvað á fimmtudagskvöldinu og hún var með mjög fastar skoðanir á því hvernig hring hún vildi.. ég fer alveg í panik enda búinn að panta hringa og mundi ekki alveg 100% hvernig þeir voru og var eiginlega kominn með í magann að henni myndi ekki finnast þessir flottir.. hún sá auðvitað hvað ég var hugsi þarna og spurði að því afhverju ég væri svona hugsi... ég sagði of course.. " æ ekkert er bara að hugsa" en í raun var ég með kúkinn ullandi að hún myndi segja oj en ekki já J
Ég náði samt að plata af henni einn hring með því að búa til hræðilega sögu að ég væri með mm mælir í vinnunni og ætlaði að mæla puttan hennar... hehe og hún trúði því. HAHA alveg magnað hvað hún gleypti við því.
Svo vakna ég á föstudagsmorguninn og læta hana fara á undan í vinnuna í fyrsta skiptið ever og um leið og hún er farinn bruna ég í Nonnagull kl 8:40 og banka á gluggann og hann kemur til dyra og ég fæ að skoða hringana aftur og vandlega núna og ákvað síðan að þetta væri í lagi og gekk endanlega frá öllu.. demant og áletrun. Svo var Sif svo elskuleg að sækja þetta fyrir mig seint um kvöldið.
Laugaradagurinn 25.10.08
Lesið um það á Ölmu bloggi... www.almadogg.bloggar.is
Hún sagði allavega já og er ég að springa úr stolti núna að vera búinn að tryggja mér æðislegustu konu sem ég hef kynnst. Falleg,sexy,fyndin,ákveðin og allt sem góðan kvenkost sæmir. Svo skemmir ekki fyrir að hún á yndislega fjölskyldu sem maður hefur smollið inní.
Ég er allavega trúlofaður og er hrrrrikalega sáttur með það.. Elska þig ástin mín.
Blogg fyrir ţig
Hæhæ,
Já ýmislegt búið að vera í gangi undanfarnar vikur svo sem en ég hef bara ekki nennt að blogga neitt en hérna kemur eitthvað.
Við Alma erum búin að vera rosalega dugleg að fara í sund á morgnana það er alveg hrikalega erfitt sérstaklega fyrir mig sem finnst alveg hrikalega gott að liggja aðeins og dorma á morgnana. En Alma hefur nú verið dugleg að ná að segja mér að DRULLA mér á lappir.... hehe sem er gott og vel vegna þess að ég hef gott af þessu. Hún syndir eins og vindurinn og er farin að taka 40ferðir sem er 1km en ég tek á bilinu 15 til 20 og er bara ánægður með það og tek svo smá hoppi skoppi æfingar fyrir hnéð.
Við fórum í bústað um daginn með Ívar,Telmu,Inga og Tryggva og var það rosa stuð. Nema HVAÐ ég og Ívar „Knoll og Tott" náðum að misskilja hvorn annan... ég bað Ívar að fá lánaða playstation vél hjá systir sinni svo hægt væri að spila Singstar og Buzz ég á tölvu en týndi rafmagnsgræjunni.. Svo erum við að leggja af stað og erum komin upp í árbæ þá spyr ég Ívar „tókstu með playstation?" „Já þú meinar snúru" „þú tókst með vél ekki satt?" segir hann. „ööö nei!!!! Hehe en það reddaðist Ingi þurfti að bruna í fjörðinn og ná í tölvu.
En jæja það reddaðist allt saman.. en svo komum við upp í bústað þá var tekinn upp ruglarinn og tengdur vegna þess að á laugardeginum var landsleikur Hollands og Íslands... nema hvað.. það þarf að leita á ruglaranum til þess að fá stöðvarnar inn og fjarstýringin var of course heima á stofuborðinu!!! En við dóum ekki ráðalausir og tókum rölt á næstu bústaði en þar var enga fjarstýringu að finna.. þetta var svona nett Sódóma atriði. Þannig að ég settist undir stýri og dró Inga með mér og við keyrðum á næsta bóndabæ og þar kom ungur drengur til dyra sem horfði á okkur eins og skrítna þegar við spuðrum hvort þau væru með AFRUGLARA! Hehe Áfram héldum við og enduðum í Úthlíð og þar var elskulegur maður sem lánaði okkur fjarstýirngu en tók símann minn í pant á meðan. Mögnuð redding þar á ferð.
Um síðustu helgi fórum við með vinnunni hennar Ölmu út að borða á stað sem heitir Basic & Lime og var það rosa gaman fyrir utan mjög endaslepptan endir á Broadway.. kikijð á Ölmu blogg til þess að lesa meira um það kvöld.
Svo er Ívar fluttur úr skúrnum og trúi ég ekki að neinn af sem maður þekkir ætli ekki að yfirtaka það place!!!!!! Aaaaaarrrgggg
Hehe
Pabbi er fluttur í Hafnarfjörð!!! Tími til kominn segi ég og býð ég hann velkominn í Nafla alheimsins!! Gott líka fyrir hann að búa á Álfaskeiðinu svona nálægt Krikanum.. ekki slæmt að búa þar. Þakka Lúlla Lauk fyrir að hafa loksins beitt sér aðeins.... hm hm
Í gær var 33 manns sagt upp hjá EJS og er það slatti í jafn fámennu fyrirtæki, ég slapp „í bili" og þakka ég yfirmanni mínum kærlega fyrir það en að sama skapi finn ég alveg svakalega til með þessu fólki sem var sagt upp. Það er stutt síðan þetta kom fyrir mig og þetta er alltaf erfiðarara þegar maður hefur lagt sig 100% fram og gefið sig allan í þetta. Fá síðan bara bréf sem segir takk fyrir bless. En í minni uppsögn allavega fólst tækifæri sem kom í ljós þegar ég fékk starfið hjá EJS og sé ég ekki baun eftir DHL í dag. En reyndar er ástandið í þjóðfélaginu þannig í dag að ég þakka fyrir að hafa verið sagt upp á þeim tíma en ekki í dag. Ef ég hefði t.d fengið að fara frá EJS í gær þá hefði ég átt viku í uppsagnarfrest .
En allt gengur rosavel annars og vonandi eru allir bloggarar ánægðir með þetta blogg bara.
Kreppudjókur
Datt i hug að deila með ykkur einu af betri ráðunum sem komið hafa fram i kreppuastandinu - kom fra Rússlandi
ЛИЧНО Я ВКЛАДЫВАЮ ДЕНЬГИ В ВОДКУ! ГДЕ ЕЩЕ МОЖНО ПОЛУЧИТЬ 40%?
Þýðing :
Persónulega, þá set ég alla mína peninga i vodka! Hvar annarsstaðar getur maður fengið 40%?
Brannndaarrriii!! JEY!!!
Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnissíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði miklar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.
Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann:
"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu.
Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna,
síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"
